HSK Selfoss Íslandsmeistarar 15-22ára

Sigurlið HSK Selfoss ásamt þjálfurum
Sigurlið HSK Selfoss ásamt þjálfurum

Meistaramót Íslands í Frjálsum íþróttum 15-22ára fór fram á Akureyri um helgina.

Lið HSK Selfoss urðu Íslandsmeistarar með því að sigra heildarstigakeppnina en liðið fékk 468 stig. Jafnframt urðu 3 aldursflokkar Íslandsmeistarar eða KK 18-19 ára , KVK 18-19 ára & KVK 16-17 ára.

Nánari úrslit einstakra keppenda:

15 ára flokkur

Magnús Tryggvi Birgisson sigraði 2000m hlaup á tímanum 10:30,29. Hann sigraði einnig stangarstökk með stökki upp á 2,30m, kringlukast með kasti upp á 42,58m & þrístökk með stökki upp á 11,79m. Hann lenti í örðu sæti í langstökki með stökki upp á 5,63m, spjótkasti með kast upp á 34,56m og kúluvarpi með kast upp á 12,34m. Magnús varð svo þriðji í sleggjukasti með kasti upp á 10,86m.

Magnea Furuhjelm Magnúsdóttir sigraði í 80m grindarhlaupi en hún kom í mark á tímanum 12,78sek. Hún sigraði einnig langstökk með stökki upp á 5,18m. Hún varð önnur í stangarstökki með stökk upp á 2,50m og þrístökki með stökk upp á 10,75m.

Ásta Kristín Ólafsdóttir sigraði sleggjukast í 15 ára flokki með kasti upp á 40,71m, Elísabet Freyja Elvarsdóttir varð önnur með kasti upp á 33,79m og Filipía Brynjarsdóttir varð þriðja með kasti upp á 19,95m. Ásta Kristín Ólafsdóttir sigraði spjótkast með kasti upp á 35,44m. Hún lenti einnig í þriðja sæti í kringlukasti með kast upp á 29,88m.

Dagbjört Eva Hjaltadóttir varð í þriðja sæti í 2.000m hlaupi á tímanum 9:21,40.

16-17ára flokkur

Anna Metta Óskarsdóttir varð í öðru sæti í stangarstökki með stökk upp á 2,30m.

Bryndís Embla Einarsdóttir varð önnur í sleggjukasti með kasti upp á 47,53m.

Helga Fjóla Erlendsdóttir varð önnur í 100m grindarhlaupi en hún kom í mark á tímanum 15,24sek.

Helga Fjóla Erlendsdóttir sigraði 100m en hún kom í mark á tímanum 12,99sek.

Helga Fjóla sigraði einnig langstökk með stökki upp á 5,32m. Anna Metta Óskarsdóttir varð í þriðja sæti með stökk upp á 4,93m.

Anna Metta Óskarsdóttir sigraði 1.500m hlaup en hún kom í mark á tímanum 6:49,27.

Bryndís Embla Einarsdóttir sigraði í spjótkasti með kasti upp á 49,78m.

Bryndís Embla Einarsdóttir sigraði kúluvarp með kasti upp á 13,88m. Þetta er nýtt HSK met, fyrra met átti Hildur Helga Einarsdóttir upp á 12,84m.

Anna Metta Óskarsdóttir sigraði 3.000m hlaup á tímanum 14:21,55.

Helga Fjóla Erlendsdóttir sigraði hástökk með stökki upp á 1,60m. Anna Metta Óskarsdóttir varð þriðja með stökki upp á 1,54m.

Anna Metta Óskarsdóttir sigraði í þrístökki í 16-17ára flokki með stökki upp á 11,46m.

18-19ára flokkur

Ísold Assa Guðmundsdóttir sigraði stangarstökk með stökki upp á 2,5m. Arna Hrönn Grétarsdóttir varð önnur með stökk upp á 1,9m.

Arna Hrönn Grétarsdóttir varð í þriðja sæti í sleggjukasti með kasti upp á 24,23m.

Kristján Kári Ólafsson sigraði sleggjukast með kasti upp á 49,2m.

Helgi Reynisson varð annar í stangarstökki með stökki upp á 3,80m. Daníel Smári Björnsson varð þriðji með stökki upp á 2,70m.

Hjálmar Vilhelm Rúnarsson sigraði kringlukast í með kast upp á 46,71m sem er nýtt HSK met. Kristján Kári Ólafsson varð annar með kast upp á 43,95m. 

Ísold Assa Guðmundsdóttir varð önnur í kringlukasti með kasti upp á 31,17m. Katrín Eyland Gunnarsdóttir varð þriðja með kast upp á 16,83m.

Ívar Ylur Birkissson sigraði 110m grindarhlaup en hann kom í mark á tímanum 14,07sek.

Ívar Ylur Birkisson sigraði 100m hlaup en hann kom í mark á tímanum 11,04sek.

Stephanie Ósk Ingvarsdóttir varð önnur í langstökki með stökk upp á 4,91m. Hugrún Birna Hjaltadóttir varð þriðja með stökk upp á 4,74m.

Hjálmar Vilhelm Rúnarsson sigraði í spjótkasti með kasti upp á 53,05m. Vikar Reyr Víðisson varð annar með kast upp á 37,74m og Daníel Smári Björnsson varð þriðji með kast upp á 31,26m.

Þórhildur Sara Jónasdóttir varð í örðu sæti í 400m hlaupi með 64,93sek.

Helgi Reynisson sigraði langstökk með stökki upp á 5,72m.

Ísold Assa Guðmundsdóttir varð í örðu sæti í 100m grindarhlaupi U20 á tímanum 18,38sek og Hugrún Birna Hjaltadóttir varð þriðja á tímanum 20,07sek.

Stephanie Ósk Ingvarsdóttir sigraði í þrístökki með stökki upp á 10,53m. Ísold Assa Guðmundsdóttir varð önnur með stökki upp á 10,04m.

Þórhildur Sara Jónasdóttir sigraði 400m grindarhlaup á tímanum 1:14,02, Hugrún Birna Hjaltadóttir varð önnur á tímanum 1:16,88.

Daníel Smári Björnsson sigraði þrístökk í 18-19 ára flokki með stökki upp á 11,90m.

Hjálmar Vilhelm Rúnarsson sigraði í kúluvarpi með kasti upp á 14,59m sem er nýtt HSK met og bæting á 46 ára gömlu meti Péturs Guðmundssonar. Kristján Kári Ólafsson varð í öðru sæti með kasti upp á 13,39m. Vikar Reyr Víðisson varð þriðji með kast upp á 11,23m.

Hjálmar Vilhelm Rúnarsson varð annar í hástökki með stökki upp á 1,91m. Helgi Reynisson varð annar með stökki upp á 1,72m.

Ísold Assa Guðmundsdóttir varð önnur í kúluvarpi með kasti upp á 10,31m.

Þórhildur Sara Jónasdóttir varð önnur í 800m hlaupi en hún kom í mark á tímanum 2:33,45.

Stepanhie Ósk Ingvarsdóttir sigraði hástökk en hún stökk 1,57m. Ísold Assa Guðmundsdóttir varð önnur með stökk upp á 1,50m og Arna Hrönn Grétarsdóttir varð þriðja með stökk upp á 1,40m.

 

20-22ára flokkur

Hanna Dóra Höskuldsdóttir varð önnur í kringlukasti með kasti upp á 35,66m.

Daníel Breki Elvarsson sigraði spjótkast með kasti upp á 54,80m.

Veigar Þór Víðisson sigraði langstökk með stökki upp á 5,94m.

Hanna Dóra Höskuldsdóttir sigraði spjótkast með kasti upp á 31,11m

Hanna Dóra Höskuldsdóttir varð önnur í kúluvarpi með kasti upp á 11,55m.

Hanna Dóra Höskuldsdóttir varð önnur í hástökki með stökk upp á 1,50m.

Boðhlaup

Lið HSK Selfoss sigraði í 4x100m boðhlaupi kvenna U23 á tímanum 55:00sek.

Lið HSK Selfoss sigraði í 4x100m boðhlaupi kvenna U20 á tímanum 1:00,24.

Lið HSK Selfoss lenti í öðru sæti í 4x100m boðhlaupi kvenna U18 á tímanum 53,00sek.

Lið HSK Selfoss lenti í þriðja sæti í 4x100m boðhlaupi pilta U18 á tímanum 57,57sek.

Lið HSK Selfoss lenti í örðu sæti í 4x100m boðhlaupi piltar U23 á tímanum 49,75sek.

Lið HSK Selfoss í blönduðu 4x400m boðhlaupi lenti í þriðja sæti á tímanum 4:21.14.