HSK/Selfoss Bikarmeistarar stúlkna 15 ára

Lið HSK/Selfoss urðu Bikarmeistarar stúlkna á Bikar 15 ára og yngri
Lið HSK/Selfoss urðu Bikarmeistarar stúlkna á Bikar 15 ára og yngri

Bikarkeppni FRÍ 15 ára og yngri fór fram í blíðskaparveðri á Sauðárkróki þann 5.júlí síðastliðinn. Lið HSK/Selfoss sendi eitt karlalið og eitt kvennalið til keppninnar. Kvennaliðið náði þeim frábæra árangri að verða Bikarmeistarar með 59 stig en í heildarstigakeppninni varð lið HSK/Selfoss í 4 sæti með 86 stig, aðeins 1 stigi frá þriðja sætinu.

Anna Metta Óskarsdóttir varð þrefaldur Bikarmeistari á mótinu. Hún sigraði hástökk þegar hún bætti sinn besta árangur og vippaði sér yfir 1,60m. Hún sigraði einnig í langstökki með bætingu er hún stökk 5,42m sem er jöfnun á HSK meti Helgu Fjólu Erlendsdóttur í þremur flokkum. Flokkum 15 ára , 16-17 ára og 18-19 ára. Hún var einnig í sigursveit HSK/Selfoss í 1000m boðhlaupi en þær Anna Metta, Ásta Kristín, Adda Sóley og Magnea Furuhjelm skipuðu sigursveitina sem kom í mark á tímanum 2:35,79 mín. Adda Sóley Sæland bætti sinn besta árangur í kringlukasti er hún vann silfur með 32,16m og hún varð síðan þriðja í 300m hlaupi á tímanum 47,15 sek. Ásta Kristín Ólafsdóttir varð í þriðja sæti í spjótkasti með 34,17m langt kast og í kúluvarpi varð hún einnig í þriðja sæti er hún bætti sinn besta árangur þegar hún kastaði 9,82m. Að lokum náði Magnús Tryggvi Birgisson þriðja sæti í kringlukasti er hann kastaði 35,05m og bætti sinn besta árangur. Aðrir keppendur deildarinnar stóðu sig mjög vel og höluðu inn dýrmæt stig þó þeir næðu ekki á verðlaunapall.

 

HSK/Selfoss sendi vaskt lið í Bikarkeppni FRÍ 15 ára og yngri