Íslandsmeistarar

Lið HSK/Selfoss Íslandsmeistari innanhúss 2023
Lið HSK/Selfoss Íslandsmeistari innanhúss 2023

Lið HSK/Selfoss varð Íslandsmeistari á Unglingameistaramóti  Íslands (15-22 ára)  sem haldið var í Kaplakrika 28.-29.janúar.  Lið HSK/Selfoss sýndi mikla yfirburði á mótinu en liðsfélagar HSK/Selfoss höluðu alls inn 390,5 stigum á mótinu.  Hörð keppni var um annað sæti en ÍR- ingar höfðu betur með 262 stig og Breiðablik endaði í 3.sæti með 245 stig. 

Lið HSK/Selfoss sigraði í fjórum aldursflokkum.  Piltar 15 ára og piltar 16-17 ára sigruðu sína flokka auk þess sem stúlkur 15 ára og stúlkur 16-17 ára unnu einnig sína flokka.  Piltar 18-19 ára enduðu í 2.sæti.  Frábær árangur hjá þessum efnilegum krökkum sem flest æfa við frábærar aðstæður í Lindexhöllinni.  Nánari frétt með einstökum afrekum keppenda kemur á næstu dögum