Fimm keppendur sem æfa með UMF Selfoss í Frjálsum íþróttum hafa verið valin til þátttöku fyrir Íslands hönd á Norðurlandamóti U20 í Frjálsum íþróttum sem fram fer í Vasa í Finnlandi 4.-5.júlí næst komandi.
Bryndís Embla Einarsdóttir UMF Selfoss mun keppa í spjótkasti.
Helga Fjóla Erlendsdóttir Garpi mun keppa í hástökki og langstökki.
Kristján Kári Ólafsson UMF Selfoss mun keppa í sleggjukasti.
Ívar Ylur Birkisson Dímon mun keppa í 110m grindarhlaupi.
Hjálmar Vilhelm Rúnarsson UMF Selfoss mun keppa í hástökki, kringlukasti og kúluvarpi.
Rúnar Hjálmarsson yfirþjálfari hjá UMF Selfoss fylgir hópnum og verður í þjálfarateymi Íslands.