Bronsleikar ÍR fóru fram í Laugardalshöllinni þann 3. október og Selfoss mætti með glæsilegan hóp, alls 26 keppendur, 9 ára og yngri!
Krakkarnir stóðu sig með mikilli prýði og umfram allt einkenndist dagurinn af gleði, hlátri, hvatningu og góðri stemningu. Fyrir marga voru þetta fyrstu skrefin í keppni og því frábært að prófa sig áfram og kynnast því hvað frjálsíþróttamót snúast um.
Við erum ótrúlega stolt af þessum flottu krökkum og hlökkum til að fylgjast með þeim halda áfram að æfa, læra og bæta sig!





