Umf. Selfoss og GTS – Guðmundur Tyrfingsson hafa gert með sér samstarfssamning sem mun nýtast öllum deildum félagsins.
Með samningnum fá deildir Umf. Selfoss sérstök kjör á rútuferðum hjá GTS. Samstarfið er mikilvægt skref í því að bæta þjónustu við deildir félagsins og auðvelda skipulag ferða vegna leikja, móta og annarra verkefna á vegum félagsins.
GTS hefur um árabil verið öflugt fyrirtæki í samfélaginu og er það félaginu mikils virði að eiga í góðu samstarfi við aðila sem þekkir vel til íþróttastarfsins og mikilvægi þess að þjónusta deildir, iðkendur og þjálfara.
Umf. Selfoss þakkar GTS kærlega fyrir stuðninginn og hlakkar til samstarfsins.