Alexander Már Egan áfram á Selfossi

Alexander Már Egan - júní 2021
Alexander Már Egan - júní 2021

Hornamaðurinn örvhenti Alexander Már Egan hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Selfoss til tveggja ára.  Alexander er uppalinn Selfyssingur og hefur leikið um árabil með meistaraflokki þrátt fyrir að vera aðeins 24 ára og var með stórt hlutverk í liðinu þegar Íslandsmeistaratitillinn vannst.

Deildin er gríðarlega ánægð að Alexander skuli framlengja við félagið og verður hann áfram einn af lykilmönnum liðsins.