Staða Íþróttastjóra Handknattleiksdeildar laus til umsóknar

ISL_2019-05-22-4119
ISL_2019-05-22-4119

Íþróttastjóri er starfsmaður á skrifstofu Handknattleiksdeildar Umf. Selfoss og starfar undir stjórn handknattleiksdeildar og í samráði við unglingaráð deildarinnar. Íþróttastjóri skal á faglegan hátt stuðla að markvissri uppbyggingu á handknattleik á vegum Handknattleiksdeildar Umf. Selfoss, tryggja jafnræði í starfi, skipuleggja starfið og skilgreina markmið þess og móta þannig heildarstefnu sem hægt er að vinna skipulega eftir.

Helstu verkefni íþróttastjóra eru:

  • Hefur yfirumsjón með öllu faglegu starfi félagsins í handbolta.
  • Hefur yfirumsjón með skipulagningu á allri þjálfun yngri flokka frá grunni og að hún sé í samræmi við markmið og heildarstefnu deildarinnar.
  • Hefur yfirumsjón með handknattleiksakademíu Umf. Selfoss og FSu.
  • Sér til þess að æfingaáætlanir séu gerðar fyrir alla flokka og þar skal koma skýrt fram stefna og markmið hvers flokks og þetta kynnt iðkendum og foreldrum.
  • Útbúa námsskrá fyrir akademíu sem tekur mið af kröfum sem stjórn handknattleiksdeildar og stjórnendur FSu.
  • Hefur yfirumsjón með mótum sem deildin heldur.
  • Stuðlar að auknu upplýsingaflæði og samvinnu við foreldra.
  • Stýrir álagi iðkenda félagsins.

Menntun og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun og/eða menntun sem nýtist í starfi.
  • Þekking og reynsla af íþróttastarfi.
  • Góðir skipulags- og stjórnunarhæfileikar.
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi.
  • Færni í mannlegum samskiptum, samskiptahæfni og samstarfsvilji.
  • Hæfileiki til að tjá sig í rituðu og töluðu máli og haldgóð tölvukunnátta.

 

Umsókn skal fylgja greinargóð ferilskrá umsækjanda og kynningarbréf.

Nánari upplýsingar um starfið veita Þórir Haraldsson formaður í síma 6641890 og Þorsteinn Rúnar Ásgeirsson framkvæmdastjóri í síma 6941721

Umsóknarfrestur er til  30. apríl 2021.

Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.  Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. 

Umsóknum má skila rafrænt á netfangið handbolti@umfs.is.