4. Landsmót UMFÍ 50+ á Húsavík um helgina

Landsmót 50+ 2014
Landsmót 50+ 2014

Um helgina, 20.-22. júní, fer 4. Landsmót UMFÍ 50+ fram á Húsavík. Mótin hafa verið haldin á hverju ári frá 2011 á Hvammstanga, 2012 í Mosfellsbæ og 2013 í Vík í Mýrdal.

Mikill hugur er í framkvæmdaaðilum í Þingeyjarsýslu og hefur undirbúningur fyrir mótið gengið samkvæmt áætlun. Skráningar fyrir mótið hafa gengið vel. Allir eru velkomnir á setningu mótsins sem verður á föstudagskvöldið klukkan 20. Sjálf keppni mótsins hefst klukkan 13 á föstudag og lýkur kl. 14 á sunnudag.

Héraðssamband Þingeyinga (HSÞ) er mótshaldari að Landsmóti UMFÍ 50+ þetta árið. HSÞ hefur áður haldið Landsmót en það var árið 1987 og hefur því reynslu að því að halda Landsmót. Mótið fer að mestu fram á Húsavík en aðstaðan á Húsavík er nokkuð góð til að halda Landsmót UMFÍ 50+. Stórt íþróttahús er á staðnum en þar munu fara fram fjölmargar keppnisgreinar. Frjálsíþróttavöllurinn er ekki langt frá íþróttahúsinu sem er með malarbraut.

Góður fótboltavöllur er á frjálsíþróttavellinum en þar fyrir ofan eru nýir gervigrasvellir. Glæsilegur 9 holu golfvöllur er rétt fyrir utan Húsavík. Einnig eru góð skólahúsnæði sem notuð verða um helgina fyrir keppnisgreinar sem eru um tuttugu talsins.

Hægt er að fylgjast með framvindu mála á heimasíðu Landsmóts UMFÍ 50+.