Á leið í landsliðsferð

Fannar Þór Júlíusson og Egill Blöndal voru valdir í landliðshóp Íslands sem fer til Noregs á Norðurlandamótið í Drammen þann 13.-14. maí. Verður þetta fyrsta Norðurlandamót Fannars en hann keppir í U18 og U21 aldursflokki. Landliðshópurinn er nýbúinn með æfingabúðir til að undirbúa sig fyrir mótið.