Álvaro Mallols til Selfoss

Álvaro Mallols Fernandez
Álvaro Mallols Fernandez
Spánverjinn Álvaro Mallols Fernandez hefur samið við handknattleiksdeild Selfoss til tveggja ára. Álvaro, sem er 23 ára gamall, er rétthent skytta og hefur leikið á Spáni undanfarin ár með liði í heimabæ sínum, Íslendinganýlendunni Torrevieja.
 
Álvaro er mjög spennandi leikmaður sem vert verður að fylgjast með í Olísdeildinni á næsta ári. Handknattleiksdeildin er virkilega ánægð með að Alvaro hafi ákveðið að koma til Selfoss.