Beltapróf og HSK mót

Um helgina var haldið beltapróf og Taekwondodeild Umf. Selfoss stóð fyrir HSK móti í þróttahúsinu Iðu.

62 aðilar vor skráðir í beltapróf og mættu flest allir þrátt fyrir veikindi á sumum bæjum. Allir þáttakendur í beltaprófinu stóðust próf, en aðeins tveir aðilar þurfa að sýna yfirþjálfara formin sín til að fá nýju beltin sín.

Um 40 manns mættu til leiks á HSK mótinu þrátt fyrir slæmt veðurútlit. Keppt var í Poomsae, sparring og hinni sívinsælu þrautabraut. Einnig var sýningahópur Taekwondodeildar að frumsýna nýtt atriði sem vakti mikla lukku viðstaddra.

Það er skemmst frá því að segja að mótið gekk í alla staði frábærlega og allir keppendur stóðu sig með stakri prýði.

Úrslit á HSK mótinu 2014

Stjórn Taekwondodeildar þakkar öllum keppendum og fjölskyldum þeirra fyrir frábært mót

pj

---

Beltapróf og HSK mót 2014 262 Beltapróf og HSK mót 2014 248 Beltapróf og HSK mót 2014 244 Beltapróf og HSK mót 2014 239 Beltapróf og HSK mót 2014 233 Beltapróf og HSK mót 2014 227 Beltapróf og HSK mót 2014 224 Beltapróf og HSK mót 2014 219 Beltapróf og HSK mót 2014 212 Beltapróf og HSK mót 2014 208 Beltapróf og HSK mót 2014 204 Beltapróf og HSK mót 2014 151 Beltapróf og HSK mót 2014 144 Beltapróf og HSK mót 2014 029