Bóndagur

bílabón
bílabón

Á morgun 28. september verður meistaraflokkur karla í handbolta með sinn árlega bóndag.

Strákarnir verða klárir að taka á móti bílum kl 9:00 í fyrramálið og verða að þangað til allir bílarnir sem mæta verða orðnir skínandi hreinir.

Bílum er skipt í tvo verðflokka:

  • Fólksbíll kr. 10.000
  • Jeppi kr. 14.000

Strákarnir verða með aðstöðu við hliðina á Flytjanda í litlu Gagnheiðinni.

Allar nánari upplýsingar gefur Atli Kristinsson í síma 696 8280.