Dagný með fyrirlestur á Hvolsvelli

Dagný Selfoss
Dagný Selfoss

Í tilefni að heilsueflandi september í Rangárþingi eystra verður Dagný Brynjarsdóttir leikmaður Selfoss og íslenska landsliðsins verður með fyrirlestur í félagsheimilinu Hvolnum á Hvolsvelli í kvöld, miðvikudag 9. september klukkan 18:00.

Dagný, sem hóf knattspyrnuferill sinn hjá KFR og er núna komin í fremstu röð knattspyrnukvenna, fer yfir sinn feril og talar um hvernig setja eigi sér markmið og þess háttar.

Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.

---

Ljósmynd: Umf. Selfoss/Guðmundur Karl