Elín Krista framlengir við Selfoss

Elín Krista Júlí 2020
Elín Krista Júlí 2020

Elín Krista Sigurðardóttir hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Selfoss til tveggja ára.  Elín, sem er örvhent skytta, er aðeins 19 ára gömul og mjög efnileg.  Hún var lykilleikmaður í liði meistaraflokks kvenna í vetur, sem var aðeins hársbreidd frá því að komast upp úr Grill 66 deildinni.  Handknattleiksdeildin fagnar þessum tíðindum, en það verður spennandi að fylgjast með meistaraflokk kvenna í vetur.

---

Mynd: Elín Krista Sigurðardóttir
Umf. Selfoss / ÁÞG