Elvar Elí framlengir

Línumaðurinn Elvar Elí Hallgrímsson hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Selfoss til ársins 2027.
 
Elvar Elí, sem er 22 ára, hefur verið lykilmaður í ungu og efnilegu liði Selfoss í vetur sem tryggði sér sæti í Olísdeild karla nú á dögunum.

Þetta eru frábærar fréttir enda spennandi tímabil framundan hjá meistaraflokki karla næsta vetur.