Línumaðurinn Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við Handknattleiksdeild Selfoss.
Emelía Ósk er átján ára gömul og hafði leikið með Fjölni alla sína ævi þar til hún gekk til liðs við Selfoss síðasta haust. Emelía var því að ljúka sínu fyrsta tímabili á Selfossi og í vetur lék hún stórt hlutverk bæði í vörn og sókn. Emelía Ósk hefur undanfarin ár verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands en hún fer á HM í Kína í sumar með U-20 ára liði Íslands.
Emelía segist vera spennt fyrir komandi vetri með Selfossi og er Handknattleiksdeild Selfoss einnig spennt að fylgjast með Emelíu halda áfram að bæta sig í vínrauðu treyjunni.