Hulda Dís framlengir

Hulda Dís Þrastardóttir hefur framlengt við handknattleiksdeild Umf. Selfoss til þriggja ára. Huldu þarf vart að kynna, en hún hefur verið lykilmaður í liði Selfoss undanfarin ár. Það verður spennandi að sjá Huldu Dís í Olísdeildinni að nýju með spennandi Selfossliði.