Erna og Katrín skrifuðu undir samninga

Erna Guðjónsdóttir og Katrín Rúnarsdóttir, leikmenn meistaraflokks kvenna, skrifuðu í gær undir samning við Knattspyrnudeild Selfoss. Þær eru báðar fæddar 1996 og eru tvær af okkar efnilegustu stelpum. Katrín spilaði 11 leiki í Pepsí deild kvenna í sumar og skoraði 2 mörk. Hún hefur einnig leikið 6 leiki fyrir U17 ára landslið Íslands. Erna kom inn á í síðasta leik Selfoss gegn Stjörnunni í Pepsí deildinni í sumar. Knattspyrnudeild Selfoss mun á næstunni semja við fleiri unga og efnilega leikmenn og er framtíðin björt á Selfossi.