Eva María er komin í lokakeppni NCAA
Selfyssingurinn Eva María Baldursdóttir gerði það gott um helgina er hún vippaði sér yfir 1.82m í hástökki og bætti sinn besta árangur um 1 cm. Eva María keppti fyrir Pittsburgh í Austurforkeppni NCAA í frjálsum íþróttum. Keppnin er hluti af landsmóti bandarísku háskóladeildarinnar í frjálsum íþróttum og var haldin í Florida á heimavelli University of North Florida. Með því að vippa sér yfir 1.82m er Eva María búin að ná þeim stórkostlega árangri að komast í lokakeppni NCAA sem fram fer eftir 2 vikur í Eugene, Oregon. Árangur Evu Maríu er jafnframt nýtt HSK met í flokki 20-22 ára en hún bætti eigið met um 1 cm.