Ferðasjóður íþróttafélaga

ISI-logo
ISI-logo

Umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga er opið. Frestur til að skila inn umsóknum vegna keppnisferða á árinu 2013 rennur út á miðnætti föstudaginn 10. janúar 2014. Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sent inn umsóknir í sjóðinn. Hægt er að fara inn á umsóknarsvæðið með því að fara á heimasíðu Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og smella á tengilinn Ferðasjóður íþróttafélaga.

Við stofnun umsóknar er send vefslóð á uppgefið netfang tengiliðar, sem nýtist sem lykill inn á viðkomandi umsókn þar til umsókn er send. Umsækjendur eru hvattir til að vanda frágang umsókna til að auðvelda og einfalda úrvinnslu þeirra. Listi yfir styrkhæf mót er að finna á umsóknarsvæðinu og þar er einnig að finna svör við algengum spurningum.

Vinsamlegast hafið samband við Höllu Kjartansdóttur skrifstofustjóra ÍSÍ í tölvupósti eða síma 514 4000 ef nánari upplýsinga er þörf eða ef þið hafið einhverjar ábendingar.

Ferðasjóður íþróttafélaga hefur fengið árlegt framlag á Fjárlögum Alþingis, allt frá árinu 2007, til úthlutunar til íþrótta- og ungmennafélaga í landinu vegna keppnisferða innanlands.  Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands var falin umsjón á útreikningi og úthlutunum úr sjóðnum.