Fimm ára þjónustusamningur við Sveitarfélagið Árborg

Umf. Selfoss - Þjónustusamningur (2)
Umf. Selfoss - Þjónustusamningur (2)

Föstudaginn 15. desember sl. var skrifað undir nýjan þjónustu- og styrktarsamning milli Sveitarfélagsins Árborgar og Ungmennafélags Selfoss. Samningurinn er til fimm ára og nær yfir alla styrki sveitarfélagsins til Umf. Selfoss. 

Með undirritun samningsins er stigið stórt skref til framtíðar en með því að gera fimm ára langtímasamning getur Umf. Selfoss skipulagt sitt starf með markvissari hætti í ljósi þess að greiðslur til félagsins næstu fimm árin liggja fyrir í samningnum. Ekki er um að ræða nein ný verkefni í samningnum en öll eldri verkefni halda áfram enda hver um sig mikilvæg í samstarfi beggja aðila. Fyrir utan hækkanir sem eru tilkomnar vegna hækkunar á almennu verðlagi í landinu er verulega bætt í styrki tengda rekstri félagsins, sér í lagi styrki sem opna á möguleika þess að ráða starfsmenn fyrir einstaka deildir. Sérstakur rekstrarstyrkur fyrir meistaraflokka félagsins hækkar jafnt og þétt á samningstímanum og greiðslur vegna fyrirmyndafélagsins haldast óbreyttar en lögð er meiri áhersla á að allar deildir fylgi áherslum ÍSÍ sem fyrirmyndafélag og viðhaldi þessum gæðastimpli bæði hvað varðar innra og ytra starf.

Samhliða undirritun þjónustusamningsins var skrifað undir rekstrarsamning fyrir Selfossvöll. Hann er einnig til fimm ára og felur í sér framhald á núverandi fyrirkomulagi að Umf. Selfoss sjái um rekstur og umsjón Selfossvallar. Knattspyrnudeild félagsins hefur séð um það verkefni undanfarin ár með sérstöku samkomulagi við aðalstjórn Umf. Selfoss.

Hægt er að kynna sér samningana nánar á vefsíðu Sveitarfélagsins Árborgar.

---

Skrifað var undir samningana í upphafi verðlaunahátíðar Umf. Selfoss en undir samninginn rituðu f.v. Kjartan Björnsson og Ásta Stefánsdóttir f.h. frá bæjarstjórn Árborgar, Guðmundur Kr. Jónsson formaður Umf. Selfoss og Gissur Jónsson framkvæmdastjóri Umf. Selfoss.