Fjóla Signý bætti 30 ára gamalt HSK-met Unnar Stefánsdóttur í 200 m

Nokkrir keppendur af sambandssvæði HSK tóku þátt í Akureyrarmótinu í frjálsum íþróttum sem fram fór á glæsilegum Akureyravelli helgina 21.-22. júlí. Fjóla Signý Hannesdóttir Selfossi bætti 30 ára gamalt HSK-met Unnar Stefánsdóttur í 200 m hlaupi á mótinu.

Fjóla hljóp á sama tíma, 25,54 sek, bæði í undanrásum og úrslitahlaupinu. Hún varð í 2. sæti og bætti eigin árangur um rúma sekúndu. Gamla HSK-metið, 25,4 sekúndur (handtímataka), setti Unnur árið 1982. Fjóla Signý sigraði í 100 m grindahlaupi á 14,73 sek. Í 400 m grindahlaupi varð hún að sætta sig við annað sætið með tímann 61,66 sek. Þá kastaði hún kúlunni 9,60 m og hlaut brons.

Sólveig Helga Guðjónsdóttir Selfossi varð í 3. sæti í 200 m hlaupi í kvennaflokki á 27,40 sek. Auk þess sem hún lenti í 6. sæti bæði í 100 m og 400 m hlaupum.

Haraldur Einarsson Vöku sigraði í langstökki með 6,49 m og varð annar í 100 m hlaupi á 11,11 sek.

Dagur Fannar Magnússon Selfossi sigraði í sleggjukasti karla þegar hann kastaði 46,02 m.

Þorsteinn Magnús-son sigraði í 3.000 m hlaupi karla á 11:08,33 mín.

Andrea Vigdís Victorsdóttir Selfossi keppti í flokki 14-15 ára telpna og sigraði í spjótkasti (400 gr) með 34,60 m og krækti sér í silfur þegar hún kastaði 9,31 m í kúluvarpi (3 kg). Auk þess vann hún silfur í 200 m hlaupiþegar hún hljóp á 28,71 sek.

Agnes Erlingsdóttir Laugdælum hljóp 400 m á 60,10 sek og hlaut brons.

Jón Gautason varð annar í kúluvarpi (5 kg) 16-17 ára pilta, kastaði 10,76 m. Hann vann sömuleiðis silfur í kringlukasti (1,5 kg) þegar hann kastaði 28,12 m.

Kvennasveit Selfoss sigraði í 4x100 m boðhlaupi á tímanum 52,37sek. Sveitina skipuðu þær Fjóla Signý, Andrea Vigdís, Edda og Sólveig Helga.

-sag