Fjöldi HSK meta og Óli áttfaldur meistari

Ólafur verðlaun MÍ Öldunga
Ólafur verðlaun MÍ Öldunga

Meistaramót öldunga í frjálsíþróttum var haldið á Kópavogsvelli í lok ágúst. Fjórir keppendur af sambandssvæði HSK tóku þátt og unnu til fjölda verðlauna og settu samtals ellefu HSK met. Auk þess varð lið HSK/Selfoss stigahæsta félagið á mótinu.

Frá þessu er greint á vef HSK.

Ólafur Guðmundsson jafnaði eitt og setti að auki sjö HSK met í aldursflokki 45-49 ára. Hann gerði sér lítið fyrir og vann átta greinar á mótinu. Hann setti met í 100 m grindahlaupi, hljóp á 16,86 sek. Óli bætti HSK met Sveins M. Gunnarssonar í 100 metra hlaupi, hljóp á 12,67 sek. Þá jafnaði hann HSK met Tómasar Jónssonar þegar hann stökk 1,60 metra í hástökki, hann bætti svo metið þegar hann stökk 1,65 metra. Hann bætti eigið met í spjótkasti, þegar hann kastaði 43,35 metra. Loks þríbætti hann HSK met Bjarka Reynissonar í langstökki, stökk fyrst 5,22, svo 5,24 og endaði með 5,55 metra.

Guðmundur Nikulásson setti tvö HSK met á mótinu, hann bætti met Þórs Vigfússonar í 100 metra hlaupi í flokki 50-54 ára. Hann hljóp á 14,12 sek.  Þá bæti hann met Hreins Erlendssonar í 400 metra hlaupi í sama aldursflokki, þegar hann skeiðaði hringinn á 68,31 sek.

Þorsteinn Magnússon mætti einnig sterkur til leiks og bætti HSK met Þórðar G. Sigurvinssonar í 200 metra hlaupi í flokki 35-39 ára.  Þorsteinn hljóp á 28,63 sek.

Fjórði keppandi HSK á mótinu var Árni Einarsson.  Hann setti ekki met að þessu sinni, en vann til fjölda verðlauna í flokki 80-84 ára karla.

Heildarúrslit mótsins má finna á Mótaforritinu Þór.