Fjölmenni á Frístundamessu og afmælishátíð Umf. Selfoss

Það var líf og fjör í Kappahl höllinni á laugardaginn þegar Frístundamessa Árborgar og afmælishátíð Umf. Selfoss fóru fram. Fjöldi gesta lagði leið sína í höllina og tók þátt í skemmtilegum degi með félaginu.

Frístundamessan stóð yfir frá kl. 10:00 til 12:00 og í kjölfarið tók afmælishátíð Umf. Selfoss við til kl. 14:00.

Boðið var upp á pylsur og ís og börnin gátu skemmt sér í hoppukastala og þeim þrautum sem félagið bauð upp á. Gunnar Geir trúbador sá um tónlistina og flutti fjölda skemmtilegra laga fyrir yngstu gestina. Lalli töframaður lét heldur ekki sitt eftir liggja, skemmti gestum með töfrasýningu og blés upp fjöldann allann af blöðrum fyrir börnin.

 

Árangurinn á íþróttavellinum setti svo punktinn yfir i-ið á góðri helgi en öll meistaraflokkslið félagsins í knattspyrnu og handknattleik sem léku um helgina fögnuðu sigri.

Umf. Selfoss þakkar gestum fyrir komuna og öllum sem komu að undirbúningi og framkvæmd viðburðanna fyrir þeirra framlag. Takk fyrir frábæran dag!