Fjórir leikmenn skrifa undir við Selfoss

leikmenn_skrifa_undir
leikmenn_skrifa_undir

Nú á dögunum skrifuðu þeir Þormar Elvarsson, Jökull Hermannsson, Guðmundur Axel Hilmarsson og Guðmundur Tyrfingsson undir samninga við knattspyrnudeild Selfoss.

Allir eru þessi leikmenn að hefja undirbúningstímabil undir stjórn Dean Martin þjálfara meistaraflokks karla.

Þormar Elvarsson er fæddur árið 2000 og á 13 leiki fyrir Selfoss en hann kom ungur til liðsins frá KFR. Jökull Hermannson er fæddur árið 1998 og hefur verið viðloðin meistaraflokkinn í nokkur ár og á 6 leiki í deild og bikar fyrir liðið. Guðmundur Axel Hilmarsson er fæddur árið 2001, en hann spilaði stórt hlutverk í meistaraflokknum á síðsta tímabili þrátt fyrir ungan aldur. Guðmundur Axel hefur einnig spilað leiki með U17 og U18 ára liðum Íslands síðustu ár. Guðmundur Tyrfinsson er fæddur árið 2003, en hann steig sín fyrstu skref í deildarkeppni í meistaraflokki undir lok síðasta tímabils. Guðmundur Tyrfings hefur einnig verið að spila með yngri landsliðum Íslands, auk þess sem að erlend félög hafa verið að sína honum áhuga.

Knattspyrnudeildin fagnar þessum samningum og er vænst til að þessir strákar verði partur af sterkri liðsheild næstu árin.

 

Mynd:
Jón Steindór Sveinsson frm. kanttspyrnudeildar stillir sér upp með leikmönnum ásamt Dean Martin þjálfara meistaraflokks karla við undirskrift í Tíbrá. Ljósmynd/UMFS