Flöskusöfnun sunddeildar

Selfoss_merki_nytt
Selfoss_merki_nytt

Sunddeild Umf. Selfoss býður fólki að setja tómar flöskur og dósir í poka og leggja út fyrir dyrnar laugardagsmorguninn 1. október 2016. Fólk er vinsamlegast beðið að setja pokann þannig að hann sjáist vel frá götunni og líma/festa á hann miða sem borinn var í hús þannig að hann sjáist vel. Þannig fyrirbyggjum við allan misskilning.

Eftir klukkan 10.30 mætir vaskur hópur sundiðkenda í götuna og safnar saman framlagi ykkar.

Flöskusöfnunin er ein af mikilvægustu fjáröflunarleiðum ungra sundmanna í Árborg og er treyst á þig til að styðja við þeirra starf. Við þökkum þitt framlag.

Sími sunddeildar á söfnunardaginn er 861-9105 hjá Guðmundi formanni.