Í síðasta fréttabréfi Umf. Selfoss sögðum við frá upphafi vetrarstarfsins og þeim verkefnum sem biðu deildanna í september. Nú hefur fyrsti haustmánuðurinn bæst í safnið og af nógu er að taka. Knattspyrnumenn fögnuðu sæti í Lengjudeildinni og bikarsigri, yngri iðkendur hófu keppnistímabilið og þjálfarar sóttu sér frekari þekkingu fyrir veturinn. Hér lítum við yfir fréttir frá deildunum og það sem er fram undan.
September fór að stórum hluta í undirbúning fyrir annasaman keppnismánuð í október. Lið Selfoss í 2. deild lék fyrstu tvo leiki tímabilsins og voru úrslitin misjöfn. Fyrri leikurinn tapaðist 6–2 gegn reynslumiklu liði BH úr Hafnarfirði en í þeim síðari gerði Selfoss jafntefli við B-lið Reykjanesbæjar. Leikmenn sýndu góða takta sem gefa tilefni til bjartsýni fyrir framhaldið.
Breytingar hafa verið gerðar á fyrirkomulagi 4. deildar. Fyrsti hluti keppninnar verður nú leikinn í sérstakri Suðurlandsdeild á þremur keppnisdögum. Fyrsta umferðin fer fram á Laugalandi 18. október en næstu tvær verða í Stekkjaskóla á Selfossi, 21. nóvember og 7. mars. Þann 21. nóvember verða einnig leiknir leikir í 2. deild í Stekkjaskóla.
Fram undan í október eru þrír keppnisdagar:
10. október: Íslandsmót í flokkakeppni unglinga á Laugalandi.
17. október: Leikir hjá liði Selfoss í 2. deild í Hafnarfirði.
18. október: Fyrsta umferð 4. deildar á Laugalandi.
Skráning gengur vel og hóparnir fyllast jafnt og þétt. Áhugasamir eru velkomnir að koma og prófa. Byrjendur æfa á mánudögum og fimmtudögum kl. 15:30–16:30 en lengra komnir á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum kl. 16:30–18:30. Allar æfingar fara fram í Stekkjaskóla.
Fræðsla þjálfara var fyrirferðarmikil hjá fimleikadeildinni í september. Alls sóttu tíu þjálfarar námskeið á vegum Fimleikasambands Íslands. Þar var meðal annars fjallað um öryggi í fimleikasal, þjálffræði, samskipti við börn, siðfræði, meiðslaforvarnir, sjálfstraust og líffærafræði. Þekkingin nýtist beint í daglegu starfi með iðkendum.
Þjálfarafundur haustsins fór fram 15. september. Þar voru áherslur vetrarins ræddar og starfið samræmt. Þjálfarar sóttu einnig fræðsludag FSÍ 19. september og hlýddu meðal annars á erindi um nákvæmni í þjálfun, þjálfun barna með taugaþroskaraskanir og mikilvægi heilbrigðra samskipta.
Ný fimm skipta námskeið á stóra trampólíninu hefjast 19. október hjá stúlkum og 29. október hjá drengjum. Þá er nú hægt að kaupa stök skipti í fullorðinsfimleika. Það er tilvalið fyrir þau sem vilja prófa eða mæta þegar færi gefst og ekki síður fyrir vinahópa sem vilja hittast í skemmtilegri hreyfingu.
Skráning á námskeið fimleikadeildarinnar fer fram á Abler.
Helstu dagsetningar fram undan eru:
14.–17. október: Evrópumót í hópfimleikum.
22.–24. október: Haustfrí.
20. nóvember: Mótaröð.
21.–22. nóvember: Haustmót yngri.
28.–29. nóvember: Haustmót eldri.
12. desember: Jólasýning.
Handboltatímabilið er komið á fulla ferð hjá yngri sem eldri iðkendum. Í september kepptu eldri árgangar 5. og 6. flokks karla og kvenna á fyrstu mótum vetrarins. Fimmti flokkur lék á höfuðborgarsvæðinu en sjötti flokkur hélt norður til Akureyrar.
5.flokkur karla eldra ár unnu sína deild á fyrsta móti.
Efri röð frá vinstri: Atli Kristinsson, Óskar Bragi Bjarkason, Jón Valur Jónsson, Hafsteinn Ingi Magnússon, Valdimar Týr Magnússon, Kristófer Agnar Sigurðsson
Neðri röð frá vinstri: Ármann Húni Haraldsson, Haddur Garðar Halldórsson, Kári Vilberg Jónsson, Matthías Bergmann Birgisson
Fyrstu helgina í október er komið að yngri árgöngum 5. og 6. flokks. Selfoss heldur þá fyrsta mót vetrarins hjá yngra ári 6. flokks kvenna í SET-höllinni. Sjöundi flokkur hefur keppni aðra helgina í október og áttundi flokkur helgina 17.–18. október. Það verður því nóg um að vera hjá yngstu handboltaiðkendunum næstu vikurnar.
Handboltaskólinn er einnig hafinn. Hann er ætlaður börnum á aldrinum tveggja til fjögurra ára og þar leiða foreldrar börnin í gegnum skemmtilegar stöðvar og verkefni. Skráning í handboltaskólann er á Abler.
Meistaraflokksliðin eru komin af stað og við hvetjum Selfyssinga til að fjölmenna á leikina og styðja liðin okkar.
Leikjadagskrá meistaraflokka í október
| Dagsetning | Tími | Leikur | Keppni | Leikstaður |
|---|---|---|---|---|
| 1. október | 18:00 | Fram – Selfoss | Olísdeild kvenna | Lambhagahöllin |
| 3. október | 15:30 | Hvíti riddarinn – Selfoss 2 | Grill 66-deild karla | Myntkaup-höllin |
| 3. október | 19:30 | Selfoss – FH | Olísdeild karla | SET-höllin |
| 9. október | 19:30 | Selfoss – Valur | Powerade-bikarinn | SET-höllin |
| 10. október | 14:00 | Haukar – Selfoss | Olísdeild kvenna | Kuehne+Nagel-höllin |
| 11. október | 16:00 | Selfoss 2 – Valur 2 | Grill 66-deild karla | SET-höllin |
| 14. október | 19:30 | Haukar – Selfoss | Olísdeild karla | Kuehne+Nagel-höllin |
| 16. október | 19:00 | Selfoss – HK | Olísdeild kvenna | SET-höllin |
| 17. október | 14:30 | Víðir – Selfoss 2 | Grill 66-deild karla | Garður |
| 21. október | 19:30 | Selfoss – Víkingur | Olísdeild karla | SET-höllin |
| 23. október | 19:30 | Selfoss 2 – Víkingur 2 | Grill 66-deild karla | SET-höllin |
| 27. október | 19:30 | Selfoss – Fram | Olísdeild karla | SET-höllin |
| 29. október | 19:30 | ÍR – Selfoss | Olísdeild kvenna | Skógarsel |
| 30. október | 20:15 | Fjölnir – Selfoss 2 | Grill 66-deild karla | Fjölnishöll |
Leiktímar geta breyst. Fylgist því með nýjustu upplýsingum á samfélagsmiðlum handknattleiksdeildarinnar og á hsi.is.
Hauststarfið hefur farið afar vel af stað hjá júdódeildinni. Fyrsta krílajúdónámskeið haustsins hefur þegar verið haldið með góðum árangri og næsta námskeið verður auglýst á næstu dögum.
Iðkendur á aldrinum sex til tíu ára fóru nýverið til Reykjanesbæjar, þar sem þeir tóku þátt í skemmtilegu móti og stóðu sig með prýði.
Næst á dagskrá er Haustmót Júdósambands Íslands, sem verður haldið í Vallaskóla á Selfossi laugardaginn 3. október. Mótið hefst kl. 10:00.
September varð eftirminnilegur hjá knattspyrnudeildinni. Karlaliðið tryggði sér sæti í Lengjudeildinni árið 2027 með 2–1 sigri á KFG á heimavelli í lokaumferð 2. deildar. Brynjar Bergsson skoraði bæði mörk Selfoss, sem lauk keppni í öðru sæti með 45 stig.
Karlaliðið kórónaði síðan tímabilið með sigri í Gatorade-bikarnum. Selfoss vann Hauka 3–1 á Laugardalsvelli eftir að hafa lent undir. Eysteinn Ernir Sverrisson jafnaði metin, Frosti Brynjólfsson kom Selfossi yfir og Viðar Örn Kjartansson innsiglaði sigurinn í uppbótartíma. Fjölmennt stuðningslið Selfoss setti svip á stúkuna og fagnaði með leikmönnum í lok leiks.
Kvennaliðið lauk sínu fyrsta tímabili eftir endurkomu í Lengjudeildina í fimmta sæti. Síðasti leikur sumarsins var gegn FHL fyrir austan og lauk honum með 1–1 jafntefli. Þar á undan vann Selfoss HK 3–1 í síðasta heimaleik tímabilsins. Liðið getur byggt á góðu sumri í undirbúningi fyrir næsta ár.
Selfoss átti þrjá fulltrúa í U17 ára landsliði kvenna í september. Hildur Eva Bragadóttir, Sara Rún Auðunsdóttir og Ásdís Erla Helgadóttir tóku þátt í æfingamóti í byrjun mánaðarins og voru síðan aftur valdar í landsliðshópinn í lok september, að þessu sinni fyrir undankeppni Evrópumótsins. Við óskum þeim til hamingju með valið og góðs gengis í verkefnunum fram undan.
Lokahóf 3. og 4. flokks fór fram í hálfleik í viðureign Selfoss og Álftaness í undanúrslitum Gatorade-bikarsins. Þar voru veittar viðurkenningar fyrir tímabilið og leikmenn fengu gjafir frá Huppu og Domino’s.
Knattspyrnudeildin þakkar leikmönnum, þjálfurum, sjálfboðaliðum og stuðningsfólki fyrir sumarið.



Skipulögðum æfingum mótokrossdeildarinnar lauk um miðjan september og tekur starfið nú hlé fram á næsta vor.
Alexander Adam lauk septembermánuði með keppnisferð til Belgíu. Þar tók hann þátt í Coupe de l’Avenir ásamt átta öðrum keppendum síðustu helgi mánaðarins og stóð sig vel.
Æfingar koparhóps hófust í byrjun september undir stjórn Guðbjargar Hrefnu Bjarnadóttur. Í hópnum eru 27 iðkendur sem skiptast í þrjá hópa eftir aldri og getu. Þeir æfa í innilauginni á mánudögum og miðvikudögum.
Á síðustu æfingu hvers mánaðar eru haldnir Strumpaleikar. Þá er brugðið út af hefðbundnu æfingafyrirkomulagi og iðkendur takast á við fjölbreyttar og skemmtilegar áskoranir í lauginni.
Brons-, silfur- og gullhópar hófu æfingar hjá Magnúsi Tryggvasyni 21. ágúst. Í hópunum eru samtals 28 iðkendur sem æfa þrisvar til fjórum sinnum í viku í útilauginni. Elstu iðkendurnir æfa jafnframt einu sinni í viku í 50 metra lauginni í Hveragerði og taka eina styrktaræfingu á viku.
Góður árangur á Sprengimóti Óðins
Níu iðkendur úr silfur- og gullhópum kepptu á Sprengimóti Óðins á Akureyri helgina 19.–20. september. Keppendur stóðu sig vel og náðu fjölmörgum persónulegum bætingum. Þrír Selfyssingar komust á verðlaunapall:
Þórey Ísafold Magnúsdóttir, í flokki 15 ára og eldri, varð þriðja í 50 metra flugsundi og önnur í bæði 100 metra fjórsundi og 100 metra skriðsundi.
Sara Fanney Snorradóttir, einnig í flokki 15 ára og eldri, varð önnur í 100 metra bringusundi, 100 metra baksundi og 50 metra baksundi.
Birta Margrét Larsen varð þriðja í 100 metra bringusundi í flokki 13–14 ára.
Fram undan í október
3. október: Flöskusöfnun sunddeildar.
8. október: Keiluferð sunddeildar.
9.–11. október: Sundmót Ægis fyrir iðkendur 14 ára og yngri úr silfur- og bronshópum.
24.–25. október: Cube-mót SH fyrir gullhóp og hluta silfurhóps.
28. október: Strumpaleikar koparhóps.
Við þökkum iðkendum, þjálfurum, foreldrum og sjálfboðaliðum fyrir septembermánuð og hlökkum til að fylgjast með starfinu í október. Mætum á mót og leiki, styðjum okkar fólk og tökum vel á móti nýjum iðkendum.
Fréttabréfið er unnið úr upplýsingum frá deildum Umf. Selfoss. Þær deildir sem sendu inn efni eiga fréttir í þessu yfirliti.
Fréttabréf Umf.Selfoss - September