Frjálsíþróttaakademía við FSu

fsu_akad_20ág_2015 (5)
fsu_akad_20ág_2015 (5)

Þriðjudaginn 1. september sl. skrifaði fulltrúi Frjálsíþróttadeilar Umf. Selfoss undir samstarfssamning við Fjölbrautaskóla Suðurlands vegna Frjálsíþróttaakademíu sem hóf starfsemi sína á haustdögum, nánar tiltekið miðvikudaginn 26. ágúst sl. á fyrsta kennsludegi haustannar 2015. Þetta eru tímamót fyrir báða aðila þar sem þetta er fyrsta starfsár akademíunnar og því frumraun.

Tuttugu og einn nemandi er skráður til leiks og eru fjórar æfingar á viku á skólatíma, 55 mínútur hver. Auk þess gefst nemendum kostur á að æfa á kvöldin með Meistarahópi Frjálsíþróttadeildarinnar. Viðfangsefni Frjálsíþróttaakademíunnar eru af ýmsum toga, svo sem eins og tækniþjálfun frjálsíþróttagreina, styrktarþjálfun, hlaupaþjálfun ásamt teygjum og slökun. Þá verða bóklegar kennslustundir nokkrar á önninni þar sem farið er í skipulagningu þjálfunar, næringarfræði o.fl. Nemendur skrifa undir  svokallaðan nemendasamning í upphafi annar eins og gert er í öðrum akademíum við skólann.

Akademían fer vel af stað og er nemendahópurinn flottur hópur unglinga víðsvegar af Suðurlandinu sem eru jákvæðir fyrir að prófa sem flest viðfangsefni. Meginmarkmið akademíunnar er að nemendur prófi sem flestar greinar frjálsíþrótta og séu dugleg að mæta og átti sig á að til þess að bæta árangur sinn í greininni þarf að stunda hana að kappi.

F.h. Frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss,
Ólafur Guðmunudsson,
Forsvarsmaður Frjálsíþróttaakademíunnar