Frjálsíþróttaskóli UMFÍ 2019

IMG_6152
IMG_6152

Í sumar verður frjálsíþróttaskóli UMFÍ starfræktur í ellefta sinn á HSK svæðinu í samstarfi við frjálsíþróttaráð HSK. Skólinn verður haldinn á Selfossi dagana 23.-27. júní. Skólinn er ætlaður fyrir börn á aldrinum 11 til 18 ára. Ungmennin koma saman um miðjan dag á sunnudegi og skólanum lýkur um hádegi á fimmtudegi í sömu viku. Aðaláhersla er lögð á kennslu í frjálsum íþróttum.

Dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg, til dæmis farið í sund, ýmis konar leiki s.s. ljósmyndaratleik og hópefli, haldnar kvöldvökur og endar skólinn með móti og pylsuveislu. Þáttökugjald í skólann er kr. 25.000 (kr. 20.000 fyrir systkini) en innifalið í því er kennsla, fæði, gisting o.fl. Aðalumsjónarmenn með skólanum 2019 líkt og undafarin ár eru Ágústa Tryggvadóttir og Fjóla Signý Hannesdóttir en einnig munu fleiri þjálfarar og aðstoðarmenn vinna við skólann. Lagt er upp með að fagmenntaðir kennarar sjái um kennsluna á hverjum stað til að tryggja sem besta kennslu fyrir ungmennin.

Í lok námskeiðsins fá öll ungmennin viðurkenningarskjal til staðfestingar um þátttökuna. Skólinn hefur fengið eindæma góð viðbrögð og ungmennin hafa farið sátt heim eftir lærdómsríka, krefjandi en umfram allt skemmtilega viku.

Skólinn gegnir mikilvægu hlutverki í að opna augu ungmenna fyrir ágæti íþróttaiðkunar og styðja fjölmargar rannsóknir þá fullyrðingu að ungmenni sem stunda íþróttir leiðast síður út í óreglu síðar á lífsleiðinni. Síðast en ekki síst öðlast ungmennin tækifæri til að kynnast hvert öðru og mynda tengslanet og auka hæfni sína í mannlegum samskiptum.

Skráning er hafin en undafarin ár hefur skólinn verið full bókaður en hámarkið er 60 iðkendur. Skólinn hefur verið fjölmennasti skólinn síðustu ár. Því er mikilvægt að tryggja sér snemma pláss í skólanum.

Skráning fer fram í gegnum tölvupóst á netfangið frjalsithrottaskoli@gmail.com.

Pósturinn þarf að innihalda eftirfarandi:
Nafn iðkanda
Heimilisfang
Staður
Kennitala (barns)
Félag (ef barnið er að æfa með félagi)
Sími
Netfang
Nafn forráðarmanns
Sími forráðarmanns
Ofnæmi eða annað sem gott er að vita-

Ef það eru einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband við okkur.