Fyrsti aðalfundur Rafíþróttadeildar Umf.Selfoss.

Ný stjórn Rafíþróttadeildar, Sigurður, Grímur, Auður og Hörður. Á myndina vantar, Noel Elías.
Ný stjórn Rafíþróttadeildar, Sigurður, Grímur, Auður og Hörður. Á myndina vantar, Noel Elías.

Fyrsti aðalfundur Rafíþróttadeildar Umf.Selfoss, var haldinn, 2. mars sl.  Deildin var formlega stofnuð í júní á sl. ári, eftir að hafa verið formlega samþykkt á aðalfundi Umf.Selfoss í apríl á sl. ári.  Farið var yfir starf deildarinnar sem hefur verið blómlegt og þónokkur fjöldi barna og unglinga eru iðkendur hjá deildinni.   Kosin var ný stjórn á aðalfundinum, en hana skipa:

Grímur Freyr Björnsson, formaður.

Auður Grétarsdóttir, gjaldkeri.

Sigurður Erlends Guðbjargarson, ritari.

Noel Elías Chareyre, meðstjórnandi.

Hörður Bjarni Harðarson, meðstjórnandi.