Góð byrjun á sumarinu hjá Umf. Selfoss

Fyrsta umferðin á Íslandsmótinu í mótokrossi fór fram í Bolaöldum þann 5. maí s.l. Veðrið var upp á sitt besta fyrir keppendur og áhorfendur. Rúmlega 80 keppendur voru skráðir til leiks og þar af voru 5 meðlimir motocrossdeildar Umf. Selfoss sem stóðu sig mjög vel.

Í 85 cc flokki keppti Þorsteinn Helgi Sigurðsso. Hann var í baráttu um toppsætið og endaði í 2. sæti eftir daginn.

Jóhann Smári Gunnarsson var skráður í B flokk. Hann stóð sig mjög vel eftir að hafa verið frá í allan vetur vegna meiðsla og var í öðru sæti eftir daginn.

Einey Ösp Gunnarsdóttir keppti í kvennaflokki og átti hún mjög gott fyrra moto og endaði í 3. sæti eftir það. Í seinna motoi var hún dæmd úr leik svo hún endaði því í 12. sæti yfir daginn.

Í unglingaflokki kepptu Andri Orri Hreiðarsson og Ragnar Páll Ragnarsson. Andri endaði í 10. sæti eftir ágætis dag og Ragnar kláraði í 5. sæti.

Af þessu má sjá að sumarið byrjar vel hjá lang flestum og verður gaman að fylgjast með í sumar.