Keppendur við rásmarkið.
Fyrsta Grýlupottahlaup ársins 2026 fer fram n.k. laugardag.
Skráning hefst klukkan 10:00 í suðurenda Kappalh hallarinnar og stendur til 10:55.
Hlaupið sjálft hefst klukkan 11:00.
Krakkarnir í meistaraflokki munu kynna nokkrar greinar inni í Kappahl-höllinni á meðan skráning stendur yfir, frá klukkan 10:00.
Það er ekkert þátttökugjald og allir eru velkomnir, ungir sem aldnir. Aðstandendur geta hlaupið með börnum sínum og vinir geta skráð sig saman; ræst er í 6 manna hópum.
Hlaupinn er hringur í kringum Selfosshöllina, rúmlega 800 metrar. Að loknum sex hlaupum eru fjórir bestu tímar hvers þátttakanda teknir saman og veitt viðurkenningarskjal. Til að hljóta viðurkenningarskjal þarf að ljúka að minnsta kosti fjórum hlaupum.
Hlauparar eru ræstir sex í einu með 30 sekúndna millibili og aðalatriðið er að vera með og hafa gaman.