Gull, silfur og brons á Norðurlandamóti

Júdó - Grímur gull U21 -100 kg
Júdó - Grímur gull U21 -100 kg

Norðurlandamótið í júdó fór fram í Trollhattan í Svíþjóð dagana 13.-14. maí. Fjórir Selfyssingar voru í sextán manna landsliðashópi auk fimm keppenda sem fóru á eigin vegum eða síns félags. Það voru þeir félagar Egill Blöndal, Grímur Ívarsson, Halldór Bjarnason og Úlfur Þór Böðvarsson.

Árangur íslensku keppandanna var mjög flottur og uppskáru þeir fjögur gull, þrjú silfur og þrjú brons verðlaun.

Af árangri Selfyssinga varð Grímur Norðurlandameistari U21 árs í -100 kg flokki. Egill hlaut silfurverðlaun í -90 kg flokki karla og Grímur hlaut einnig bronsverðlaun í -100 kg flokki karla. Úlfur varð í 7. sæti í -90 kg flokki bæði karla og U21. Halldór keppti í -70 kg flokki U18 þar sem hann tapaði fyrstu glímu..

Glæsilegur árangur hjá piltunum okkar.

---

Á mynd með frétt er Grímur á efsta þrepi í U21.
Á mynd fyrir neðan er Egill að lokinni góðri glímu.
Ljósmynd: JSÍ