Haukar unnu Ragnarsmót karla 2018

20180811_173318
20180811_173318

Haukar unnu Ragnarsmót karla 2018 eftir sigur á ÍBV nú um helgina, en mótið stóð frá miðvikudegi til laugardags í síðustu viku. Sex lið tóku þátt á mótinu sem heppnaðist vel í nýjum heimkynnum handboltans, íþróttahúsinu Iðu.

Ásgeir Örn Hallgrímsson (Haukar) var valinn besti leikmaður mótsins og var einnig markahæstur ásamt Birki Benediktssyni (Aftureldingu) með 18 mörk. Hergeir Grímsson var valinn sóknarmaður mótsins og Fannar Þór Friðgeirsson (ÍBV) varnarmaður mótsins. Arnór Freyr Stefánsson (Afturelding) var valinn markmaður mótsins.

 

Niðurstaðan var því þessi
1. sæti: Haukar
2. sæti: ÍBV
3. sæti: Afturelding
4. sæti: Selfoss
5. sæti: ÍR
6. sæti: Víkingur

Stelpurnar hefja síðan leik á fimmtudaginn 16.ágúst n.k. og er fyrsti leikur Selfoss-Afturelding kl. 18:30. Við hvetjum alla til að koma og líta við í Iðu og að sjálfsögðu er frítt inn.