Haukur Ingi og Richard með nýja samninga

Haukur Ingi, Sveinbjörn og Richard 006
Haukur Ingi, Sveinbjörn og Richard 006

Í dag mættu Haukur Ingi Gunnarsson og Richard Sæþór Sigurðsson í Tíbrá til að skrifa undir 3 ára samning við knattspyrnudeildina. Það var Sveinbjörn Másson framkvæmdastjóri deildarinnar sem undirritaði samninginn fyrir hönd deildarinnar.

Drangirnir eru báðir afar efnilegir leikmenn öflugs 2. flokks Selfoss og er mikil ánægja innan knattspyrnudeildarinnar með undirritunina. Að sögn Sveinbjarnar er þeim nú tryggð bestu mögulegu aðstæður til að þroskast og vaxa sem leikmenn. Ég er mjög spenntur að fylgjast með drengjunum á næstu árum sagði Sveinbjörn kampakátur að lokinni undirritun.