Heiðursfélagi Guðmundur Kr. Jónsson setur HSK met

Guðmundur Kr. Jónsson kjörinn formaður Umf. Selfoss 2014
Guðmundur Kr. Jónsson kjörinn formaður Umf. Selfoss 2014

Guðmundur Kr. Jónsson Heiðursfélagi Umf. Selfoss setti samtals fimm HSK met á stökkmóti öldunga sem haldið var Selfosshöllinni 2. maí.

Guðmundur tvíbætti met Jóns. M. Ívarssonar í langstökki án atrennu í flokki 75-79 ára og stökk lengst 1,90 metra. Þá gerði hann gott betur og þríbætti met Jóns M. í þrístökki án atrennu og stökk lengst 5,21 metra.

Það er gaman að segja frá því að líklega eru 45 ár síðan Guðmundur Kr. setti síðast HSK met, en hann á enn HSK metin í sömu greinum í flokki 34-39 ára sem sett voru árið 1981.

Elsta HSK met Mumma, sem enn stendur, er í þrístökki 18-19 ára utanhúss og var sett á Laugarvatni 12. júlí 1965, viku eftir hið fræga Landsmót UMFÍ.