Héraðsdómaranámskeið

Héraðsdómaranámskeið verður haldið í Tíbrá fimmtudaginn 13. júlí kl. 18:00.
Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi dómara og þá sem vilja öðlast réttindi héraðsdómara og veitir dómurum réttindi til að starfa á leikjum í meistaraflokki.

Um er að ræða tveggja og hálfs tíma fyrirlestur. Einungis þeir sem lokið hafa byrjendanámskeiði hafa rétt á því að sitja námskeiðið. Ekkert próf en viðvera gefur réttindi til héraðsdómara og er námskeiðið ókeypis. Lögð er áhersla á hagnýtar hliðar dómgæslunnar.

 

Skráning fer fram í gegnum tölvupóst
skraning@umfs.is