Hópleikurinn hefst á laugardag

Nýr hópleikur, haustleikur Selfoss getrauna, hefst laugardaginn 5. nóvember. Hægt er að skrá sig til leiks í Tíbrá, Engjavegi 50, þar sem er opið hús frá kl. 11-13 alla laugardaga í vetur.

Einnig er hægt að skrá sig í hópleikinn á slóðinni www.tippleikur.is/selfoss. Þátttökugjald er kr. 6.000 fyrir hópinn (tveir saman í hópi) og verða glæsilegir vinningar fyrir sigurvegara leiksins.

Síðan er að sjálfsögðu hægt að kaupa seðil í leiðinni og freistast til að ná í þann stóra, en um helgina verða um 90 milljónir í pottinum!

Styrkjum félagstengslin og mætum í Tíbrá á laugardagsmorgnum. Þar er alltaf heitt á könnunni og bakkelsi á boðstólum frá Guðnabakaríi. Að sjálfsögðu er enski boltinn í beinni.

Láttu vini þína, félaga og fjölskyldu vita og hvettu alla til að mæta með okkur. Við hlökkum til að sjá þig.