Ingi Rafn nýr aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla

Ingi Rafn Ingibergsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla. Inga þarf ekki að kynna fyrir stuðningsmönnum Selfoss en hann á að baki ríflega 300 leiki fyrir Selfoss. Auk þess hefur hann spilað fyrir Ægi, ÍBV, Frey og nú síðast Árborg.

Undanfarin ár hefur Ingi Rafn starfað á skrifstofu knattspyrnudeildarinnar ásamt því að þjálfa yngri flokka Selfoss. Hann vinnur nú að því að sækja sér UEFA-A þjálfararéttindi.

Ingi hefur nú þegar tekið til starfa enda liðið komið á fullt í sínum undirbúningi fyrir næsta tímabil.

Á dögunum var eins árs framlenging á samningi Stefáns Loga, markmannsþjálfara meistaraflokks, tilkynnt og teymið því farið að taka á sig góða mynd.