Íslandsbanki aðalstyrktaraðili fimleikadeildar

Samningur Íslandsbanka
Samningur Íslandsbanka

Jón R. Bjarnason, bankastjóri Íslandsbanka á Selfossi handsalaði fyrir skömmu styrktarsamning við Fimleikadeild Umf. Selfoss.

Íslandsbanki hefur um árabil verið aðalstyrktaraðili fimleikadeildarinnar og var samningurinn endurnýjaður í upphafi október. Slíkur samningur hefur mikið vægi fyrir deildina og eru styrktarsamningar ein forsenda þess að halda megi öflugu starfi deildarinnar úti.

Við sama tækifæri skrifuðu liðsmenn meistaraflokks Selfoss í hópfimleikum undir samning við félagið fram til vors. Mörg spennandi verkefni eru framundan í hópfimleikum en flokkurinn hefur m.a. unnið sér rétt til keppni á Norðurlandamóti fullorðinna sem haldið verður í Vodafonehöllinni 14. nóvember. Á mótinu keppa tvö lið frá hverju landi í hverjum flokki og staðfestir þátttökuréttur Fimleikadeildar Selfoss styrk deildarinnar.

Eftir áramótin hefst  ný mótaröð FSÍ þar sem þau hafa öll metnað til að gera sitt besta til að Selfoss haldi áfram að vera í fremstu röð í hópfimleikum á Íslandi.

---

Myndin var tekin þegar liðsmenn meistaraflokks handsöluðu samninginn við Jón R. Bjarnason.