Íslandsmeistarar í 2. og 4. flokki kvenna og drengjaflokki

KKY_unglingamot
KKY_unglingamot

Um helgina fór fram Íslandsmót unglinga í hópfimleikum á Selfossi. Mótið var fjölmennt en alls tóku 53 lið frá 12 félögum þátt. Keppnin var hörð í mörgum flokkum en hér á eftir eru helstu úrslit.

Í 1. flokki kvenna endaði Selfossliðið í 3. sæti á eftir Gerplu en Stjarnan sigraði með yfirburðum í þessum flokki. Selfossstelpurnar áttu mjög gott mót og sýndu að liðið býr yfir miklum og góðum karakter.

Í 1. flokki blandaðra liða lét Selfoss í lægri hlut fyrir Gerplu en munurinn á milli liðanna var 0,3 stig sem er vart til að tala um. Selfossliðið átti ekki sitt besta mót og á nóg inni.

Í 2. flokki kvenna hömpuðu stelpurnar Íslandsmeistaratitli. Þar var einnig örmjótt á munum en þær sigruðu með 0,37 stiga mun en lið Stjörnunnar varð í 2. sæti og lið Gerplu í 3. sæti. Ekkert liðanna í efstu sætunum voru að keyra sitt besta mót og nóg inni hjá þeim öllum. Það verður því spennandi að fylgjast með vormótinu og sjá hvernig deildarkeppnin endar.

Í 2. flokki blandaðra liða varð Selfoss mix í 2. sæti á eftir liði Gerplu en aðeins 1,9 skildu liðin að. Selfossliðið átti fínt mót og mun án efa koma sterkt til leiks á vormótinu.

Í 3. flokki A-deild kepptu tvö lið fyrir hönd Selfoss þ.e. Selfoss 6 og Selfoss 8.  Selfoss 6 voru 0,13 stigum frá því að hampa Íslandsmeistaratitli en urðu í 2. sæti eftir mjög flott mót. Þær voru að bæta við sig heilmiklum erfiðleika og gerðu það vel. Selfoss 8 varð í 4. sæti en þær eru greinilega á beinu brautinni og komu mjög sterkar inná þetta mót og halda sér uppi í A-deild.

Í 4. flokki kvenna voru þrjú lið frá Selfossi í kepppni þ.e. Selfoss 9, Selfoss 10 og Selfoss 11. Selfoss 9 gerðu sér lítið fyrir og hömpuðu Íslandsmeistaratitlinum annað árið í röð 1,4 stigum á undan næsta liði sem var FIMA frá Akranesi. Þessi lið hafa átt í jafnri og spennandi keppni um nokkurt skeið. Röðin frá haustmótinu snérist við en þá sigraði lið Hattar frá Egilsstöðum en núna enduðu þær í þriðja sæti og FIMA í öðru sæti. Lið Selfoss 10 stóð sig mjög vel enduðu í 7. sæti. Þær munu því keppa í B-deild á vormótinu á Akureyri. Selfoss 11 stóðu sig líka mjög vel en þær höfnuðu í 5. sæti á þessu móti. Liðið er mjög ungt og efnilegt og þær eiga nóg inni.

Í yngri flokki drengja vorum við með eitt lið sem stóð sig frábærlega en þeir hömpuðu Íslandsmeistaratitli í flokknum en lið Stjörnunnar beið lægri hlut fyrir drengjunum. Strákarnir sigruðu með nokkrum yfirburðum en alls skildu 7 stig liðin að í fyrsta og öðru sæti.

Í 5. flokki voru þrjú lið frá Selfossi en í þessum flokki fá allir viðurkenningarpening fyrir þátttökuna. Það var gaman að sjá þessar ungu og efnilegu stelpur stíga sín fyrstu spor í keppni og ljóst að framtíðin er björt.

Mótið gekk í alla staði vel og ekki hægt að framkvæma það án aðkomu fjölda sjálfboðaliða sem stóðu vaktina alla helgina og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir það.

Öll úrslit mótsins má finna á vef Fimleikasambands Íslands.