Íslandsmót 2026

Um helgina skelltum við okkur á Skagann þar sem Íslandsmót í hópfimleikum og stökkfimi fór fram í umsjá ÍA.

Mótið var vel heppnað og umgjörðin góð. Selfoss átti lið 7 lið á mótinu sem dreifðust á 4 daga.

Á fimmtudaginn keppti 2. flokkur á sínu lokamóti þetta tímabilið. Stelpurnar hafa verið í mjög mikilli framför í vetur, liðsheildin hefur aukist til muna, erfiðleikinn tekið stórt skref upp á við og öryggið skein af þeim á þessu móti. Þær áttu mjög jafnt og gott mót og fengu meðal annars lendingarbónus fyrir að hafa lent allar æfingar á dýnu án móttöku. Virkilega flottur hópur sem átti góðan keppnisdag.

Á föstudaginn kepptu svo 1. flokkarnir okkar, annars vegnar stúlkurnar og hins vegar blandaða liðið okkar. Stúlknaliðið átti svolítið brösuga byrjun á trampólíni en voru snöggar að rífa sig upp, áttu góðar æfingar á gólfi og skiluðu óaðfinnanlegum dýnustökkum og fengu þar meðal annars lendingarbónus og urðu Íslandsmeistarar á dýnu. Frábær endurkoma hjá liðinu sem sýnir vel hversu flottan karakter þær hafa. 

Blandaða liðið átti heilt yfir góðan dag, það voru örlitlir hnökrar í æfingunum hjá þeim en heilt yfir skiluðu þau hreinum og öruggum æfingum á öllum áhöldum. Þau lentu í 2. sæti samanlagt eftir flotta keppni og er virkilega skemmtilegt hvað það hefur verið öflugog góð keppni í þessum flokki í vetur.

Úrslitin má finna hér: https://live.sporteventsystems.se/Score/WebScore/3656?f=8136&country=isl&year=-1

Á laugardeginum átti 3. flokkur leik, bæði í stökkfimi og í hópfimleikum. Við áttum 2 lið í stökkfimi og 2 lið í hópfimleikum og öll liðin stóðu sig með mikilli prýði. Þau hafa verið í mikilli uppbyggingu í vetur og eru æfingarnar þeirra að verða bæði erfiðari og hreinni sem er akkúrat þróunin sem við viljum vera að sjá. Flottir hópar sem við erum mjög stolt af.

Að lokum steig meistaraflokkur á stokk en þeirra keppni fór fram á sunnudeginum, í beinni útsendingu frá RÚV.
Liðið hefur verið á flottu róli í vetur, liðsheildin hefur skilað liðinu betri frammistöðu og meiri stöðugleika. Þær áttu góðar æfingar á bæði trampólíni og dýnu, þar sem þær skiluðu hreinum og vel útfærðum æfingum. Þær áttu einnig góðar æfingar á gólfi en í vetur hafa þær lagt mikla vinnu í að samhæfa og styrkja nýjan dans sem þær byrjuðu að vinna að í haust, með góðum árangri. 

Frábært að enda mótatímabilið á þessu móti sem við göngum stolt frá og spennt fyrir næsta tímabili. Innilega til hamingju með ykkur, kæru iðkendur og þjálfarar!

Fimleikadeild Selfoss er í samstarfi við Íslandsbanka, Bílverk BÁ, HSH þrif og flutninga og Hótel Geysi.