Íslandsmót unglinga í hópfimleikum um helgina

IMG_0112
IMG_0112

Íslandsmót unglinga í hópfimleikum fer fram í Ásgarði í Garðabæ um helgina.  Alls eru 52 lið skráð til keppni frá tíu félögum af öllu landinu.  Selfoss er með 11 lið skráð til keppni í fjórum mismunandi flokkum en þeir eru aldurs- og kynjaskiptir.  Keppt er í flokki 9-10 ára, 11-12 ára, 13-15 ára og 15-17 ára sem og 15 ára og eldri flokk sem kallast opinn flokkur.  Selfoss sendir tvö karlalið og níu kvennalið.  Hart verður barist í mörgum flokkum og verður gaman að fylgjast með okkar fólki sem hefur æft stíft í vetur fyrir mótið.  Foreldrafélag fimleikadeildarinnar í samstarfi við stjórn hafa látið útbúa Selfossflögg til að lita stúkuna vínrauða um helgina og ná góðri stemmingu.  Fánarnir verða til sölu í stúkunni hjá foreldrum/stjórn á krónur 1200.  Við hvetjum foreldra, vini og aðra velunnara fimleika að kíkja í Ásgarðinn en þar mun allt verða í fullu fjöri.