Íþróttasjóður

Rannís
Rannís

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði. Umsóknarfrestur er til 2. október 2017 og lokar fyrir umsóknir kl. 17:00. Umsóknir berist rafrænt á vef Rannís.

Íþrótta- og ungmennafélög geta sótt í sjóðinn fyrir alla sem eru að starfa að íþróttamálum og útbreiðslu- og fræðsluverkefni á sviði íþrótta. Einnig þá sem starfa að rannsóknum á sviði íþrótta. Styrkirnir eru ætlaðir íþrótta- og ungmennafélögum á landinu til að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana. Einnig til að stunda rannsóknir á ýmsum þáttum íþróttastarfsemi í landinu.

Íþróttasjóður byggir á Íþróttalögum nr. 64/1998 og reglugerð um sjóðinn nr. 803/2008. Markmið sjóðsins er að stuðla að nýsköpun og eflingu íþróttastarfs fyrir börn og unglinga, efla þekkingu þjálfara og leiðbeinenda í íþróttastarf, auka gildi íþróttastarfs í forvörnu og auka veg og virðingu íþróttastarfs í samfélaginu.

Veita má framlög til eftirfarandi verkefna á sviði íþrótta;
- Sérstakra verkefna íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana.
- Útbreiðslu- og fræðsluverkefna og skal einkum lögð áhersla á verkefni sem uppfylla einhver eftirfarinna skilyrða;
* Stuðla að nýsköpun og eflingu íþróttastarfs fyrir börn og unglinga.
* Eflingu þekkingu þjálfara og leiðbeinenda í íþróttastarfi.
* Auka gildi íþróttastarfs í forvörnum.
* Auka veg og virðingu íþróttastarfs í samfélaginu.
- Íþróttarannsókna.
- Verkefnum samkvæmt 13. gr. íþróttalaga.

Verkefnin þurfa að falla að markmiðum íþróttalaga. Þar segir að íþróttir séu hvers konar líkamleg þjálfun er stefnir að því að auka líkamlegt og andlegt atgervi, heilbrigði og hreysti.