Íþróttasjóður - skilafrestur umsókna er til 1. október

Rannís
Rannís

Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði.

Veita má framlög til eftirfarandi verkefna:
• sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana
• útbreiðslu- og fræðsluverkefna
• íþróttarannsókna
• verkefna samkvæmt 13. gr. Íþróttalaga.

Umsóknarfrestur rennur út 1. október 2015 klukkan 17.00. Rannís hefur umsjón og eftirlit með Íþróttasjóði. Nánari upplýsingar um sjóðinn, umsóknareyðublöð og leiðbeiningar er að finna á vefsíðu Rannís. Umsóknum skal skila á rafrænu formi. Nánari upplýsingar veitir Andrés Pétursson, andres.petursson@rannis.is, sími 515-5833.