Jóna Margrét verður aðstoðarþjálfari

Þjálfarateymi meistaraflokks kvenna. Frá vinstri: Ketill Heiðar Hauksson, Unnur Þórisdóttir, Jóna Ma…
Þjálfarateymi meistaraflokks kvenna. Frá vinstri: Ketill Heiðar Hauksson, Unnur Þórisdóttir, Jóna Margrét Ragnarsdóttir og Eyþór Lárusson.
Mynd: ÁÞG

Nú er þjálfarateymi meistaraflokks kvenna Selfoss orðið fullskipað fyrir komandi átök í vetur. Ásamt Eyþóri þjálfara og Katli sjúkraþjálfara bætast við þær Jóna Margrét Ragnarsdóttir sem aðstoðarþjálfari og Unnur Þórisdóttir sem styrtkarþjálfari.

Jóna Margrét er margreynd landsliðskona í handbolta en hún lék á sínum tíma 64 landsleiki og skoraði í þeim 119 mörk. Jóna Margrét lék allan sinn feril með Stjörnunni þar sem hún hampaði bæði Íslands- og bikarmeistaratitlum. Kemur hún með mikla reynslu inn í teymið sem hún mun miðla til yngri leikmanna.

Unnur Þórisdóttir kemur einnig inn í þjálfarateymið og mun halda utan um styrktarþjálfun meistaraflokks kvenna. Unnur er menntaður sjúkraþjálfari og hefur verið Katli sjúkraþjálfara til halds og traust síðustu ár.

Eins og áður sagði verður Eyþór Lárusson áfram þjálfari meistaraflokks kvenna og Ketill Heiðar Hauksson mun vera áfram sjúkraþjálfari liðsins. Inga Guðlaug Jónsdóttir verður áfram liðsstjóri liðsins.

Handknattleiksdeild Selfoss lýsir yfir gríðarlegri ánægju með samsetningu þjálfarateymis meistaraflokks kvenna og eru spennandi tímar framundan hjá liðinu.