Landsbankinn og handknattleiksdeildin endurnýja samning sinn

Landsbanki Selfoss handbolti
Landsbanki Selfoss handbolti

Landsbankinn og Handknattleiksdeild Umf. Selfoss hafa endurnýjað samstarfssamning sinn.  Um langt skeið hefur Landsbankinn verið einn af aðalstyrktaraðilum deildarinnar og er afar stoltur af því samstarfi, sem og árangri deildarinnar. Samstarfið styður vel við markmið bankans að efla íþrótta- og æskulýðsstarf á svæðinu. 

Handknattleiksdeildin er afar þakklát fyrir þetta farsæla samstarf og bindur miklar vonir við áframhaldandi farsælt samstarf.

---

Við undirskrift á samstarfssamning í húsakynnum Landsbankans á Selfossi. F.v Helga Guðmundsdóttir og Nína Guðbjörg Pálsdóttir frá Landsbankanum og þeir Þorsteinn Rúnar Ásgeirsson og Einar Sindri Ólafsson frá handknattleiksdeildinni. Fyrir aftan þau standa leikmenn meistaraflokks karla og kvenna.
Ljósmynd: Umf. Selfoss / ÁÞG