Landsmót UMFÍ á Selfossi

Selfossvöllur
Selfossvöllur

Eftir rétta viku hefst Landsmót UMFÍ á Selfossi en keppni hefst eftir hádegi á fimmtudeginum 4. júlí. Landsmótsgestir fara væntanlega að drífa að fljótlega upp úr næstu helgi og verður örugglega straumur fólks á staðinn þegar líður að mótshelginni.  Búist er við allt að 2000 keppendum og fjölda áhorfenda og annarra gesta þannig að það verður án efa  fjölmennt á Selfossi. Framkvæmdaaðilar mótsins biðja heimamenn að sýna tillitssemi og nokkra þolinmæði því búast má  við aukinni umferð bæði akandi og gangandi fólks. Þar sem þessu munu fylgja truflanir á umferð, aðallega umhverfis helstu keppnisstaðina, er fólk beðið um að taka þessu með bros á vör.

Landsmótið verður sett á Selfossvelli föstudaginn 5. júlí kl. 21 og eru allir Selfyssingar sem og Sunnlendingar velkomnir á setningarathöfnina. Heimamenn og gestir eru hvattir til að njóta Landsmótsins, fylgjast með keppni og hvetja keppendur, mæta á viðburði og fyrirlestra og taka þátt í opinni keppni sem er í boði í 10 km götuhlaupi, pútti og boccia.

Sérstaklega er bent á mjög áhugaverða fyrirlestra sem haldnir verða í hátíðasal FSu. Þar byrja Selfyssingar sem eru  í fremstu röð í sínu fagi í heiminum. Þórir Hergeirsson, þjálfari heims- og ólympíumeistara Noregs í handknattleik kvenna, mun halda fyrirlestur fimmtudaginn 4. júlí kl. 20 og Vésteinn Hafsteinsson, þjálfari Ólympíumeistara í kringlukasti, mun halda fyrirlestur föstudaginn 5. júlí kl. 18.  Báðir þessir höfðingjar eru heimsþekktir og hafa áhugaverðan og uppbyggilegan boðskap að flytja. Á eftir þeim koma fleiri áhugaverðir fyrirlestrar, meðal annars um næringu íþróttafólks og markmiðasetningu. Þá verður sérstök skemmtidagskrá í miðbæjargarðinum á Selfossi á laugardagskvöld að lokinni keppni.

Skipulagi keppninnar hefur verið breytt nokkuð frá fyrri mótum. Meiri áhersla er lögð á keppni á laugardegi og sunnudegi þegar úrslit fara fram í hópíþróttum auk þess sem einstaklingskeppnin fer fram af fullum krafti. Þannig verður mest umleikis yfir helgina sjálfa sem gefur bæði keppendum og gestum færi á að njóta margra spennandi en ólíkra viðburða á skömmum tíma. Spennandi íþróttakeppni er auðvitað aðalskemmtun Landsmótanna. Mótinu verður síðan slitið með afhendingu heildarverðlauna á Selfossvelli kl. 17 á sunnudeginum 7. júlí.

Allar nánari upplýsingar má fá á heimasíðu Landsmótanna www.landsmotumfi.is

Sjáumst á Landsmóti - með bros á vör.

Þórir Haraldsson,
formaður framkvæmdanefndar.