Langar þig að prófa eitthvað nýtt og skemmtilegt?

Hvernig væri að skella sér aðeins burt yfir helgina 15.-17. nóvember með hressu ungu fólki og prófa eitthvað öðruvísi og skemmtilegt? Helgina 15.-17. nóvember hefur Ungmennaráð UMFÍ skipulagt skemmtihelgi á Sólheimum á Grímsnesi sem verður uppfull af skemmtun. Öll ungmenni á aldrinum 16-30 ára sem vilja hittast og skemmta sér án vímuefna eru velkomin.

Dagskráin hefst föstudagskvöldið kl 20:00 á Sólheimum. Hópurinn hefur undanfarin ár sameinast í bíla og ekið saman á skemmtihelgina. Helgin kostar litlar 1.500 kr á mann – gisting og matur. Greiða þarf það gjald inn á reikning UMFÍ sem er 130-26-100006 og senda kvittun á sabina@umfi.is til að skrá sig.

Til að kynna sér málin frekar er einnig hægt að hafa samband við Sabínu í síma 568 2929 eða á sabina@umfi.is.

Hlökkum til að heyra í þér,
Ungmennaráð UMFÍ